Fréttir frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg

Syndicate content
Updated: 11 min 1 sekúnda ago

Aukaleikarar í atvinnuleit styrkja SL

Wed, 22/02/2012 - 00:00
Hópur atvinnuleitenda hefur undanfarin misseri gefið kost á sér sem aukaleikarar í ýmis verkefni. Á síðsta ári tók hópurinn þátt í gerð Áramótaskaups RÚV og fékk greitt fyrir þá vinnu. Ákveðið var að láta þann pening renna í styrk til tveggja félagasamtaka og voru greidd um það atkvæði innan hópsins. Slysavarnafélagið Landsbjörg og Hlutverkasetur urðu fyrir valinu og í dag fékk félagið veglegan styrk greiddan inn á reikning sinn. Er aukaleikurunum færðar góðar þakkir fyrir. 
Smellið á fyrirsögn fréttar til að lesa meira. 

Slysavarnaskóli sjómanna fær höfðinglega gjöf frá VÍS

Wed, 22/02/2012 - 00:00
Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afhenti í gær Slysavarnaskóla sjómanna 10 björgunarbúninga til að nota við kennslu í sjóbjörgun. Er það liður í forvarnasamstarfi sem hófst haustið 2009 og felur meðal annars í sér að VÍS færir skólanum árlega tug björgunarbúninga enda engin vanþörf á þar sem skólinn þarf að endurnýja hátt á þriðja tug björgunarbúninga á ári vegna mikillar notkunar á þeim á æfingum skólans.
Smellið á fyrirsögn fréttar til að lesa meira. 

Útkall rauður í Grindavík

Sun, 19/02/2012 - 00:00

Björgunarsveitin Þorbjörn var kölluð út í dag eftir að drepist hafði á aðalvél línuskips með 14 manna áhöfn í innsiglingunni til Grindavíkur. Björgunarskip sveitarinnar Oddur V. Gíslason kom að skipinu stuttu eftir útkall og tók það í tog til hafnar í Grindavík. Skipin lögðust svo að bryggju heilu og höldnu um 20 mínútum eftir að útkall barst.

Auglýst eftir framkvæmdastjóra SL

Sat, 18/02/2012 - 00:00
Auglýst hefur verið eftir framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Óskað er eftir öflugum og drífandi einstaklingi til að sinna einstaklega fjölbreyttu, lifandi og krefjandi starfi. Umsjón með ráðningarferlinu hefur ráðningarstofan Intellecta. Auglýsinguna um starfið má sjá hér

Fjallgöngumenn í vandræðum

Fri, 17/02/2012 - 00:00

Björgunarsveitir í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu voru kallaðar út í kvöld vegna fjallgöngumanna sem lentu í vandræðum við Grýtutind við Eyjafjallajökul. Fólkið var vel búið en hafði lent í sjálfheldu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út ásamt fjallabjörgunarhópum af höfuðborgarsvæðinu. Þyrlan komst að fólkinu rétt fyrir kl. 23 og var björgunarsveitum þá snúið við. Fjallgöngumennirnir voru óslasaðir en óttast var að þeir gætu kólnað mjög hratt og allur viðbúnaður því miðaður við það.

Minningarstyrkur til Slysavarnaskóla sjómanna

Fri, 17/02/2012 - 00:00
Í dag barst Slysavarnaskóla sjómanna peningagjöf til minningar um Einar G. Gunnarsson, vélfræðing og kennara, er lést þegar togarinn Hallgrímur SI-77 fórst við Noreg í janúar. Bekkjarbræður Einars og eiginkonur þeirra söfnuðu í sjóðinn og var það vilji ekkju hans að hann rynni til slysavarna sjómanna. Hafsteinn J. Reykjalm afhenti Gunnari Stefánssyni, starfandi framkvæmdastjóra SL, styrkinn í Skógarhlíð í dag. 

Samið við MSM um sjúkrakassaþjónustu

Thu, 16/02/2012 - 00:00
Heildverslunin MSM á Selfossi hefur tekið við innflutningi og dreifingu á sjúkravörum á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. SL hefur um árabil flutt inn og selt sjúkrakassa til einstaklinga og fyrirtækja og þjónustað kaupendur með áfyllingum. M.a. er um vörur frá BurnFree, Shöngen, Akla AB og Steroplast að ræða. Samningurinn gildir til ársins 2016. 

Björgunarsveitir á Suðurnesjum í viðbragðsstöðu

Thu, 16/02/2012 - 00:00
Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru settar í viðbragðsstöðu um klukkan þrjú í nótt þegar flutningaskipið Brúarfoss varð vélarvana um 6 sjm vestur af Garðskaga. Mjög slæmt veður var á staðnum, vestan stormur og 7 m ölduhæð og rak skipið hratt að landi. Varðskipið Ægir var kallað á staðinn sem og nærstaddur togari. Þyrla LHG var einnig sett í viðbragðsstöðu.  
Smellið á fyrirsögn fréttar til að lesa meira. 

Ljósmyndasýning í tilefni af 112 deginum

Tue, 14/02/2012 - 00:00
Í tengslum við 112 daginn sem haldinn var um land allt laugardaginn 11. febrúar var sett upp ljósmyndasýning í verslanamiðstöðinni Smáralind. Þar voru sýndar myndir af störfum viðbragðsaðila á síðasta ári. Sýningin stendur út þessa viku. En þar sem ekki eiga allir heimangengt í Smáralind á þessum tíma má sjá myndirnar á sýningunni hér.  

Vélarvana utan við Hafnarfjarðarhöfn

Mon, 13/02/2012 - 00:00
Björgunarsveit Hafnarfjarðar var kölluð út klukkan 17:15 í dag þegar tilkynnt var um vélarvana bát rétt utan við ytri garðinn í Hafnarfjarðarhöfn. Bátinn rak í átt að landi og var því talin nokkur hætta á ferðum. Meðlimir björgunarsveitarinnar fóru á staðinn á Fiskakletti, hraðskreiðum, harðbotna báti sveitarinnar og voru komnir að bátnum nokkrum mínútum eftir að útkall barst. Reyndist í lagi með skipverjann, sem var einn um borð. Verið er að draga hinn bilaða bát til hafnar.

112 dagurinn haldinn hátíðlegur um land allt

Sat, 11/02/2012 - 00:00
112 dagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Víða tóku viðbragðsaðilar höndum saman um dagskrá í sínu heimahéraði og setti hún svip sinn á daginn. Í Smáralind var sýning björgunartækja og búnaðar og kynntir voru þeir aðilar sem eru að baki neyðarnúmerinu. Gísli Örn Gíslason var valinn skyndihjálparmaður Rauða krossins árið 2011 en hann sýndi hárrétt viðbrögð á neyðarstundu þegar dóttir hans fór í hjartastopp á heimili þeirra fyrir um ári. Einnig voru verðlaun veitt í eldvarnagetraun SHS og neyðarvörður ársins útnefndur. Jafnframt hélt Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra tölu. 

Vetrarlífssýningin Éljagangur haldin á Akureyri

Sat, 11/02/2012 - 00:00

Síðan á fimmtudag hefur vetrarlífssýningin Éljagangur verið í gangi á Akureyri með skemmtilegri dagskrá. Um helgina kynna fjölmargir aðilar starfsemi sína í íþróttahöllinni Boganum. Meðal þeirra er Slysavarnafélagið Landsbjörg sem kynnir Safetravel verkefni sitt. Gestum eru gefnir bæklingar, sýnd sprungukort jökla auk þess sem þeir geta tekið þátt í leik og unnið fræðandi vinninga. Félagið frumsýnir tvö myndbönd, annað um ferðaáætlanir og hitt um hina heilögu þrenningu, þ.e. mikilvægi ýlis, snjóflóðastangar og skóflu í vetrarferðum. Á sýningunni býður félagið einnig upp á tvo fræðslufyrirlestra, annars vegar um "Snjóflóð" sem Gunnlaugur Búi heldur og hinsvegar um "Örugga vélsleðamennsku" sem Gísli Páll heldur.

Víða dagskrá á 112 deginum

Fri, 10/02/2012 - 00:00
Björgunarsveitir og slysavarnadeildir félagsins taka virkan þátt í 112 deginum sem haldinn verður hátíðlegur um land allt á morgun, laugardaginn 11.02. 2012. Sveitir og deildir á höfuðborgarsvæðinu verða með viðveru í Smáralind og sýna þar m.a. tæki og búnað. Á landsbyggðinni er víða dagskrá, oft í samvinnu við aðra viðbragðsaðila. Smellið á fyrirsögn fréttar til að skoða það sem er í boði víða um land.

112: Ekki hika – hringdu til öryggis

Fri, 10/02/2012 - 00:00
112-dagurinn verður haldinn um allt land laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni er áhersla lögð á að hvetja fólk til að hika ekki heldur hringja í 112 ef það telur sig þurfa á aðstoð að halda – til öryggis. Efnt er til dagskrár í Smáralind og hjá viðbragðsaðilum um allt land. 112-dagurinn er haldinn víða um Evrópu á sama tíma en 112 er samræmt neyðarnúmer í löndum Evrópusambandsins.Smellið á fyrirsögn fréttar til að lesa meira. 


Eignatorg styrkir Slysavarnafélagið Landsbjörg

Thu, 09/02/2012 - 00:00
Fasteignasalan Eignatorg og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa gert með sér samkomulag þar sem Eignatorg gerist einn af stuðningsaðilum félagsins. Eignatorg mun láta 15.000 kr af hverjum frágengnum kaupsamningi sem gerður er næstu þrjú árin renna til SL. 

Drengir sem leitað var að í Svartárdal fundnir

Wed, 08/02/2012 - 00:00
Drengirnir sem struku af meðferðarheimili í Skagafirði í dag og björgunarsveitir hafa leitað í kvöld eru fundnir.  Drengirnir fundust í veiðihúsinu við Skeggjastaði þar sem þeir höfðu brotist inn. Voru þeir mjög þrekaðir enda búnir að vera lengi á ferðinni utandyra illa búnir. Um 60 björgunarsveitamenn frá Húnavatnssýslum og Skagafirði tóku þátt í leitinni.

Strokupilta leitað í Svartárdal

Wed, 08/02/2012 - 00:00
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Húnavatnssýslum og Skagafirði leita nú unglingspilta er struku af meðferðarheimili í Skagafirði í dag. Björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar á áttunda tímanum í kvöld og skömmu síðar gaf einn drengjanna sig fram en ekki er vitað hvar hinir tveir halda sig. Talið er að þeir hafi farið í Svartárdal, inn af Húnaveri.Um 50 björgunarsveitamenn taka þátt í leitinni og aka þeir slóða og leita í útihúsum við sveitabæi í dalnum. Veður á svæðinu er ágætt en hiti er kominn niður undir frostmark. Talið er að drengirnir séu afar illa búnir.

Í hrakningum á Vatnajökli

Wed, 08/02/2012 - 00:00

Björgunarfélag Hornafjarðar kallað út um klukkan hálf tíu í morgun til að sækja tvo breska ferðamenn sem eru í vandræðum í Norðlingalægð á miðjum Vatnajökli. Eru þeir blautir og hraktir og tjald þeirra brotið. Mennirnir hugðust ganga frá Kirkjubæjarklaustri, yfir Vatnajökul og til Hafnar. Lítur út fyrir að þeir séu búnir að vera á ferðinni í mánuð og að þeir hafi gefið sér allt að 50 daga til að ljúka þessari göngu. Í morgun náðu þeir sambandi við Bresku strandgæsluna og þaðan barst aðstoðarbeiðni til Neyðarlínunnar. Gervihnattasími mannanna er straumlítill en gera björgunarsveitir ráð fyrir að hafa aftur samband við þá í hádeginu. Um 15 manns frá Björgunarfélaginu taka þátt í aðgerðinni og er farið á þremur bílum og fjórum sleðum á staðinn. Ekki er vitað hversu langan tíma það mun taka en fara þarf hátt í 50 km á jökli til að komast að mönnunum. Vonast er til að hægt verði að koma þeim til byggða fyrir kvöldið því spár gera ráð fyrir versnandi veðri þegar líður á daginn. 

Úlnliðsbrotinn gönguskíðamaður

Mon, 06/02/2012 - 00:00

Björgunarsveitirnar Dalbjörg úr Eyjafirði og Súlur á Akureyri eru nú á leið að Vegamótavatni, austan Hofsjökuls, að sækja slasaðan skíðamann. Er talið að hann sé úlnliðsbrotinn eftir fall. Maðurinn er breskur og hugðist ganga á skíðum þvert yfir landið að norðan, suður í Vík, í fjáröflunarskyni. Björgunarsveitir eru í símasambandi við manninn sem hefst nú við í tjaldi sínu og bíður aðstoðar. Fjórir bílar og fjórir vélsleðar eru á leið á slysstað og er gert ráð fyrir að ferðin taki nokkrar klukkustundir. Samkvæmt upplýsingum frá jeppamönnum sem voru á ferð á svæðinu í gær er færðin þung fyrir bíla en ágæt fyrir sleða. Verið er að skoða hvort þyrla LHG geti sótt manninn

Útkall í Esju

Sun, 05/02/2012 - 00:00
Sleðahópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú á leið í útkall í fjallshlíðum Esju. Tilkynning barst frá vélsleðamönnum um 13:40 að einn þeirra hefði orðið fyrir óhappi og þeir þyrftu aðstoð. Viðkomandi fékk höfuðhögg þegar hann féll af sleða sínum á akstri og kvartar yfir verk í höfði, hálsi og baki.

Theme by Danetsoft and Danang Probo Sayekti inspired by Maksimer