Sunnudagskvöldið 6. janúar 1947, klukkan um það bil 9, er tvær stúlkur á bænum Hrauni í Grindavík voru á leið til mjalta, urðu þær þess varar, að skip hafði strandað þar undan landi. Skyggni var mjög slæmt og ákaflega mikið brim, en stúlkurnar heyrðu til eimpípu skipsins. Formanni björgunarsveitarinnar í Grindavík var þegar tilkynnt strandið. Kallaði hann björgunarmenn til starfa, og voru þeir að búast til ferðar, er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins í Reykjavík náði sambandi við þá. Hafði loftskeytastöðin í Reykjavík um kl. 9:15 gert Slysavarnafélaginu aðvart um það, að breski togarinn "Lois" frá Fleetwood væri strandaður um 15 sjómílur norðvestur af Selvogi. Klukkan rúmlega hálftíu var björgunarsveitin komin á vettvang. Fann hún skipið strandað í svokallaðri Hrólfsvík inn úr Hraunsvíkinni. Var hún um það bil 100 metra undan landi, og lá þvert í brimgarðinum á stjórnborðssíðu. Brim var ákaflega mikið, og gengu stærstu skaflarnir yfir skipið. Björgunarlínu var skotið af línubyssu, og hæfði hún í fyrsta skoti. Gekk björgunin mjög vel, þrátt fyrir brimrótið. Um miðnætti hafði tekizt að bjarga 15 mönnum, öllum ómeiddum, en flestum voru þeir kaldir og hraktir og...
Sunnudagur, 19 February, 2012 - 18:57
-
Fimmtudagur, 5 January, 2012 - 22:28
-
Sunnudagur, 1 January, 2012 - 00:56
-
Fimmtudagur, 29 December, 2011 - 18:25













