Útkall F-1 Rauður, skip stjórnvana
Sunnudaginn 19.feb kl. 17:30 fékk stjórnstöð landhelgisgæslunnar kall frá Páli Jónssyni GK-007 um að skipið væri stjórnvana í innsiglingu út frá Grindavík með 14 manna áhöfn, var hægt að stýra skipinu að einhverju leiti með hlðarskrúfum skipsins. Varðstjórar hjá Landhelgisgæslunni kölluðu strax út á mesta forgagni (F-1 Rauður) björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Odd V. Gíslason og björgunarsveitina Þorbjörn, einnig var þyrla LHG kölluð út á mestum forgagni (Útkall Alpha). Um 5 mín eftir að útkall barst voru skipverjar Odds V. búnir að koma línu í Pál, 6 mín seinna var Oddur V. að ýta Páli að bryggju og var þar með hættuástandinu aflýst.
Frétt af vefsíðu hjá Landhelgisgæslunni
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk um kl. 17:30 í dag kall í talstöð frá fiskiskipinu Páli-Jónssyni GK-007. Fram kom að skipið væri stjórnvana í innsiglingu út frá Grindavík með fjórtán manns í áhöfn, en gæti stýrt að einhverju leyti með hliðarskrúfum. Varðstjórar í stjórnstöð LHG kölluðu strax út með mesta forgang björgunarskip Slysvarnarfélagsins Landsbjargar, Odd V. Gíslason og björgunarsveitina í Grindavík. Þá var þyrla LHG einnig kölluð út á mesta forgang. Um kl 17:46 hafði skipið samband og lét vita að það væri komið inn fyrir hafnargarða Grindavíkurhafnar og nyti aðstoðar björgunarskipsins Odds V. Gíslasonar. Þegar skipið var komið að bryggju kl 17:52 var hættuástandi aflýst og þyrlan afturkölluð sem og björgunarsveitir. Varðstjórar í stjórnstöð fylgdust með atburðarrás í gegnum fjarskipti og ferilvöktunarkerfi stöðvarinnar.





