Breski togarinn Lois strandar í Hrólfsvík 1947
Sunnudagskvöldið 6. janúar 1947, klukkan um það bil 9, er tvær stúlkur á bænum Hrauni í Grindavík voru á leið til mjalta, urðu þær þess varar, að skip hafði strandað þar undan landi. Skyggni var mjög slæmt og ákaflega mikið brim, en stúlkurnar heyrðu til eimpípu skipsins. Formanni björgunarsveitarinnar í Grindavík var þegar tilkynnt strandið. Kallaði hann björgunarmenn til starfa, og voru þeir að búast til ferðar, er framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins í Reykjavík náði sambandi við þá. Hafði loftskeytastöðin í Reykjavík um kl. 9:15 gert Slysavarnafélaginu aðvart um það, að breski togarinn "Lois" frá Fleetwood væri strandaður um 15 sjómílur norðvestur af Selvogi. Klukkan rúmlega hálftíu var björgunarsveitin komin á vettvang. Fann hún skipið strandað í svokallaðri Hrólfsvík inn úr Hraunsvíkinni. Var hún um það bil 100 metra undan landi, og lá þvert í brimgarðinum á stjórnborðssíðu. Brim var ákaflega mikið, og gengu stærstu skaflarnir yfir skipið. Björgunarlínu var skotið af línubyssu, og hæfði hún í fyrsta skoti. Gekk björgunin mjög vel, þrátt fyrir brimrótið. Um miðnætti hafði tekizt að bjarga 15 mönnum, öllum ómeiddum, en flestum voru þeir kaldir og hraktir og sumir þjakaðir nokkuð. Var nú aðeins eftir einn maður, skipstjórinn, er staðið hafði á stjórnpalli allan tímann, meðan á björgun manna hans stóð. Fór skipstjóri nú niður af stjórnpallinum og ætlaði að ganga fram þilfarið, að framsiglu, þar sem björgunarlínan hafði verið sett föst. Þegar hann átti eftir örskamman spöl að björgunarstólnum, reið ólag undir, skipstjóri hrasaði og sjórinn tók hann fyrir borð, svo hann drukknaði. - Hinir aðþrengdu skipverjar voru fluttir í bílum heim að Hrauni, þar sem þeim var veitt hin bezta aðhlynning.




